Forgangsþjónusta - Liggur á að þýða?
Forgangsþjónusta
Það er oft þörf á þýðingum eða yfirlestri sem liggur á. Þar af leiðandi bjóðum við upp á þann möguleika að setja verkefni í forgang. Með öðrum orðum, þá þýðir það að við leggjum allt annað sem við erum að vinna að til hliðar og hefjumst handa við verkefnið þitt til þess að geta afgreitt það eins fljótt og mögulegt er. Við getum í mörgum tilvikum haft textann tilbúinn samdægurs, en það fer þó eftir textamagni.
Diction er alltaf með fókusinn á því að afgreiða hágæða þýðingar á réttum tíma og í mörgum tilfellum afhendum við fyrir ákveðinn tímafrest. Ef þig vantar að láta þýða texta á innan við 48 tímum lítum við á það sem flýtiverkefni. Við lítum einnig sömu augum á það ef um er að ræða mikið magn texta með stuttan afhendingarfrest. Við höfum marga þýðendur á skrá hjá okkur og getum því alltaf tekið að okkur að þýða, þó svo að verkefnið sé stórt í sniðum.
Trúnaður
Mikið af þeim texta sem við vinnum með hefur ekki verið notaður áður eða birtur opinberlega. Það er því mikilvægt fyrir marga af okkar viðskiptavinum að það ríki trúnaður um textann og við höfum því gert allar nauðsynlegar öryggisráðstafanir til að geta tryggt trúnað varðandi skjölin þín. Diction passar upp á að uppfylla allar siðferðislegar reglur innan okkar fags. Allir þýðendur okkar eru bundnir af trúnaðar- og þagnarskyldu. Við gætum því fyllsta trúnaðar í allri okkar vinnu.
Hafðu samband
Hafðu samband í síma 644 0800 eða sendu okkur tölvupóst á [email protected] til að fá tilboð án skuldbindingar.