Pantaðu læknisfræðilegar þýðingar, unnar af færustu þýðendunum, sem einnig hafa læknisfræðilegan bakgrunn.
Læknisfræðilegar þýðingar
Diction tekur að sér að þýða læknisfræðilega texta fyrir bæði opinberar stofnanir og einkarekin lyfjafyrirtæki. Við höfum mikla reynslu af læknisfræðilegum þýðingum og erum með marga þýðendur á skrá sem sérhæfa sig í faginu.
Hvað eru læknisfræðilegar þýðingar?
Læknisfræðilegir textar ná yfir mikinn fjölda texta svo sem tímaritsgreinar, vísindagreinar, vörulýsingar og ýmsa bæklinga með læknisfræðilegum upplýsingum. Þess háttar texti þarf að vera í samræmi við læknisfræðilegar málvenjur og hugtök, sem eru mismunandi milli tungumála.
Læknisfræðilegar þýðingar hjá Diction
Til að þýða læknisfræðilegan texta þarf þýðandinn að þekkja til innan læknisfræðinnar. Það er mikilvægt að þýðandinn skilji og þekki þýðingu læknisfræðilegrar hugtakanotkunar í frumtextanum og geti með því tryggt að merking hans komi skýrt fram í þýðingunni. Þýðandinn þarf að þekkja til læknisfræðilegrar málnotkunar og hugtakanotkunar, bæði í frum og markmáli, til að geta komið með bestu lausnina á trúverðugum texta.
Þegar við hjá Diction tökum á móti læknisfræðilegum texta þá tryggjum við að þýðingin sé unnin af þýðanda sem hefur læknisfræðilega þekkingu og reynslu af því að þýða læknisfræðilegan texta. Eftir að þýðingunni er lokið getum við fengin annan þýðanda með sömu sérþekkingu til að lesa yfir og þar með tryggjum við þér hágæða, vandaðar, læknisfræðilegar þýðingar.
Auk þess er þér velkomið að senda okkur tilvísunarefni eða aukaupplýsingar með textanum þínum, t.d. eldri þýðingar, myndir af vörum eða önnur skjöl, sem gefa þýðandanum frekari mynd af því hvaða hugtakanotkun væri æskilegust. Við meðhöndlum allar upplýsingar sem sendar eru til okkar í trúnaði og þér er því óhætt að senda okkur læknisfræðilegan texta og fá tilboð í verkið.
Hafðu samband
Sendu okkur fyrirspurn í gegnum formið á síðunni til að fá tilboð án skuldbindingar. Ef það vakna upp spurningar þá getur þú alltaf haft samband í síma 644 0800 eða skrifað okkur tölvupóst á [email protected]