Tæknilegar þýðingar fyrir einstaklinga, stofnanir og fyrirtæki
Tæknilegar þýðingar
Hvað eru tæknilegar þýðingar?
Tæknilegar þýðingar ná yfir mikinn fjölda af mismunandi texta sem er tæknilegs eðlis. Það geta t.d. verið kerfislýsingar, notendahandbækur, vörulýsingar, öryggisleiðbeiningar og margt fleira. Tæknilegir textar geta því verið af ýmsum toga og úr fjölda faggreina, en hver faggrein notar viss hugtök sem eru mismunandi eftir tungumálum. Textarnir geta sem sagt verið úr allt frá upplýsinga- og rafeindatæknigreinum yfir í arkitektúr.
Tæknilegar þýðingar hjá Diction
Þýðingar á tæknilegum texta geta verið flóknar og þarf þýðandinn að þekkja þau hugtök sem notuð eru á hverju sviði og geta greint á milli hvað er notað í hverri faggrein, bæði á frummáli og marktungumáli textans.
Hjá Diction erum við sérhæfð í að þýða tæknilega texta, innan margra ólíkra faggreina, og það er okkur mikilvægt að þú fáir nákvæmar og faglegar þýðingar á þínum tæknilega texta. Auk þess er þér velkomið að senda okkur tilvísunarefni eða aukaupplýsingar með textanum, t.d. eldri þýðingar, myndir af vörum eða önnur skjöl, sem gefa þýðandanum frekari mynd af því hvaða hugtakanotkun væri æskilegust. Við meðhöndlum alltaf allar upplýsingar sem sendar eru til okkar í trúnaði og þér er því óhætt að senda okkur texta og fá óskuldbindandi tilboð í þýðingaverkið.
Hafðu samband
Hafðu samband í síma 644 0800 eða sendu okkur tölvupóst á [email protected] til að fá tilboð án skuldbindingar.