Vandaðar danskar þýðingar - Snör vinnubrögð - Hagstæð verð
Hagstæð verð
Við þýðum frá 49 kr. á orð og prófarkalesum frá 14 kr. á orð.
Gæði
Við notum eingöngu reynda þýðendur sem þýða yfir á sitt móðurmál. Þannig tryggjum við gæðaþýðingar.
Hröð þjónusta
Við getum oft klárað þýðinguna samdægurs. Það veltur þó á textalengd.
Fáðu danska þýðingu í fjórum einföldum skrefum
Reiknaðu út þitt verð
Reiknaðu út þitt verð
Dönskumælandi þýðendur
Diction býður upp á þýðingar úr og yfir á dönsku. Við höfum ráðið til okkar stóran hóp af sérhæfðum dönskumælandi þýðendum sem geta aðstoðað þig. Gæði, hagstæð verð og skilvirk þjónusta fyrir íslenskan markað.
Danskar þýðingar
Tengslin á milli Danmerkur og Íslands ná aftur til 14. aldar. Danska var einmitt fyrsta erlenda tungumálið sem öll börn lærðu í skóla, eða allt fram til ársins 1999, þegar enskan var sett framar dönskunni. Íslensk börn eru þó enn skyldug til að læra dönsku í grunnskóla sem sitt annað erlenda tungumál. Þrátt fyrir að Íslendingar læri dönsku í grunnskóla þá ná þeir almennt ekki mikilli færni á tungumálinu. Þess vegna bjóðum við upp á þýðingar sem eru framkvæmdar af fagfólki sem hafa unnið við danskar þýðingar í mörg ár.
Þýðendur með móðurmálskunnáttu
Diction vinnur eingöngu með þýðendum sem þýða yfir á sitt eigið móðurmál. Það þýðir að allur texti, sem við fáum til þýðingar yfir á dönsku, er unninn af Dana með nauðsynlega hæfni. Það tryggir að viðskiptavinir okkar fái vandaðan og faglega þýddan texta. Við bjóðum einnig upp á það að viðskiptavinir okkar geti fengið sama þýðanda fyrir öll sín verkefni og með því tryggjum við að þýðandinn verði kunnugur orðalagi viðskiptavinarins. Ásamt því að tryggja að sama orðalag sé notað í öllum verkefnum viðskiptavinarins.
Prófarkalestur á dönsku
Við höfum sérhæft okkur í prófarkalestri á dönskum texta auk þess að vera með hagstæðustu verðin á markaðnum. Þegar þú færð faglegan prófarkalestur hjá Diction þá fylgir yfirlestur á stafsetningu, málfræði, innsetningu greinarmerkja og setningargerð. Textinn er afhentur tilbúinn til notkunar og með faglegt yfirbragð, sem er sérstaklega nothæft fyrir umsóknir, vinnutengdar kynningar og fræðilega texta. Við framkvæmum prófarkalestur okkar í Microsoft Word og nýtum yfirleitt ”Rekja breytingar” nema annað sé tekið fram, þannig að viðskiptavinir okkar geti alltaf séð hvað er breytt.
Fljót afgreiðsla
Í þýðingar- og textagerðarbransanum er mikilvægt að geta mætt þörfum viðskiptavina fljótt og skilvirkt. Við getum því alltaf skilað þýðingum og prófarkalestri á stuttum tíma. Auk þess getur þú alltaf náð í okkur annað hvort í síma eða tölvupósti. Við leggjum mikla áherslu á að vera í góðum samskiptum við okkar viðskiptavini til að koma í veg fyrir misskilning sem gæti haft áhrif á gæði textans. Í stuttu máli sagt, þá tökum við að okkur allar gerðir af verkefnum, með bæði stuttan og langan afhendingarfrest, og það getum við gert því við erum sveigjanleg og aðlögum okkur að þörfum viðskiptavinarins.
Teymið okkar
Við erum til þjónustu reiðubúin í síma 644 0800 eða á netfanginu [email protected]. Opið virka daga frá 08:00 til 17:00.