Vélþýðingar - Ódýrari þýðingar og skemmri skilafrestur
Vélþýðing
Fáðu ódýrari þýðingar og hraðari þjónustu með aðstoð frá sjálfvirkri vélþýðingu Diction. Fyrir suma viðskiptavini getur það verið kostur að fá vélþýðingu, sem er síðan lesin yfir og leiðrétt af þýðanda. Ef þú ert í vafa um hvort vélþýðing sé það rétta fyrir þig hafðu þá samband við einn af verkefnastjórunum okkar og fáðu mat á stöðunni, þér að kostnaðarlausu.
Hvað er vélþýðing?
Vélþýðing er þýðing sem er gerð sjálfvirkt frá einu tungumáli yfir á annað. Það eru margir kostir og ókostir við vélþýðingu og þarf að meta sérstaklega í hverju tilviki hvenær það er skynsamlegt að nota vélþýðingu. Stóri kosturinn við vélþýðingu er að það er hægt að þýða mikið magn af texta mjög hratt og í einhverjum tilvikum getur það verið hagkvæmt. Annar kostur við vélþýðingu er að hugtakanotkunin er vistuð og tengd við þig sem viðskiptavin. Með því færðu meiri einsleitni í þínum þýðingum. Þrátt fyrir marga kosti þá eru mörg tilfelli þar sem það er ekki skynsamlegt að nota vélþýðingu. Verkefnastjórar Diction eru til taks til að meta hvert tilvik.
Er vélþýðing rétti kosturinn?
Við leggjum faglegt mat á það hvort rétt sé að nota vélþýðingu hverju sinni. Almennt séð er vélþýðing oftast notuð fyrir einfaldan texta, t.d. tölvupóstsamskipti innan fyrirtækis, einfaldar vörulýsingar hjá netverslunum, SEO – textar, kynningar og í einhverjum tilvikum getur vélþýðing verið notuð við flóknari texta, þar sem þú notar vélþýðingu til að skilja meginboðskap heildartextans.
Hvenær notar maður vélþýðingu?
Í þessum hluta höfum við reynt að taka saman í hvaða tilvikum það getur verið kostur að nota vélþýðingu.
Við mælum með vélþýðingu og auka yfirlestri af starfsmanni á eftirfarandi textum:
- Umsagnir notenda
- Spjallskilaboð frá viðskiptavinum
- Tölvupóstssamskipti
- Innri samskipti fyrirtækja
- Handbækur, ætlaðar til notkunar innan fyrirtækja
- Uppfærslur fyrir samfélagsmiðla
- Texta fyrir algengar spurningar og svör (FAQ)
- Þekkingargrunnur með mikið magn texta
- Einfaldir textar á heimasíðum, vörulýsingar, notendaleiðbeiningar
- Bloggfærslur
Á eftirfarandi sviðum mælum við með að fenginn sé þýðandi í verkið:
- Þýðingar á lögfræðilegum texta
- Fjármálatexta
- Tæknilegum texta
- Tilkynningar sem á að prenta
- Almannatengsl/fréttabréf
Dæmin hér fyrir ofan eru þó einkum til leiðbeiningar.
Vélþýðing er yfirfarin af prófarkalesara
Til að tryggja gæði vélþýðinga er textinn alltaf yfirfarinn og leiðréttur í kjölfarið af prófarkalesara. Allir prófarkalesarar okkar hafa lokið meistaranámi og vinna eingöngu með texta á þeirra móðurmáli.
Hvað kostar vélþýðing?
Við viljum geta boðið upp á bestu mögulegu verðin og til að einfalda það eins og hægt er þá erum við með fast verð á orð. Verðið getur þó verið aðeins breytilegt eftir því hvaða tungumál um er að ræða, tegund skjalsins, eða eftir afhendingarfresti. Ef þú ert með textann á Word þá getur þú margfaldað orðafjöldann með verði fyrir hvert orð og þá færðu gróft verðmat.
Þitt eigið þýðingaminni - afsláttur við endurtekningar og samþætting við þitt eigið kerfi
Með því að nýta þýðingaminni kerfisins okkar getum við vistað og varðveitt þínar fyrri þýðingar. Það veitir þér hraðari og nákvæmari þýðingar og þú greiðir ekki tvisvar fyrir sömu þýðinguna. Þýðingaminnið er alltaf þín eign og er eingöngu varðveitt í kerfinu okkar eins lengi og þú óskar. Það veitir þér svigrúm til að skipta um þýðanda ef þú óskar þess. Í mörgum tilvikum er einnig hægt að gera skrá sem er hægt að lesa inn í CRM kerfi, heimasíður, kóða eða svipað þar sem annars þyrfti að setja inn handvirkt. Við aðstoðum alltaf viðskiptavini okkar með þýðingarferli þeirra, þ.e.a.s. hvernig þú vilt nota þýðingarnar. Til að fá frekari upplýsingar um hvort við getum aðstoðað með þitt kerfi þá getur þú haft samband við verkefnastjóra okkar og við förum yfir alla möguleikana.