Vandaðar taílenskar þýðingar - Snör vinnubrögð - Hagstæð verð
Hagstæð verð
Við þýðum frá 59 kr. á orð og prófarkalesum frá 18 kr. á orð.
Gæði
Við notum eingöngu reynda þýðendur sem þýða yfir á sitt móðurmál. Þannig tryggjum við gæðaþýðingar.
Hröð þjónusta
Við getum oft klárað þýðinguna samdægurs. Það veltur þó á textalengd.
Fáðu taílenska þýðingu í fjórum einföldum skrefum
Reiknaðu út þitt verð
Reiknaðu út þitt verð
Vantar þig vandaðar taílenskar þýðingar?
Ef þig vantar faglegar taílenskar þýðingar þá er Diction alltaf með hagstæðustu verðin á hágæða þýðingum. Það getum við boðið vegna þess að við höfum á skrá hjá okkur stóran hóp af færum og reynslumiklum taílenskum móðurmálsþýðendum, sem geta þýtt og prófarkalesið allar tegundir taílenskra texta. Við höfum unnið ýmiskonar fjölbreytt verkefni með taílenskan texta og þú getur því verið viss um að við höfum nauðsynlega sérþekkingu til að aðstoða þig.
Taílenskar þýðingar
Þýðingar á taílenskum texta er einn af okkar styrkleikum vegna þess að við leggjum mikið upp úr því að velja réttu þýðendurna innan tungumálsins. Diction leggur alltaf áherslu á að veita góða þjónustu á hágæða þýðingum og við leggjum því mikið upp úr því að geta mætt þörfum og óskum viðskiptavina okkar. Vegna þess að við höfum stóran hóp af færum og reynslumiklum þýðendum á skrá hjá okkur, getum við alltaf veitt hraða þjónustu og boðið viðskiptavinum okkar lausnir, sem eru sérsniðnar að þeirra þörfum. Auk þess tökum við alltaf vel í séróskir varðandi þýðingar og prófarkalestur.
Móðurmálsþýðendur og prófarkalesarar tryggja þér hágæðaþýðingar
Eins og áður hefur komið fram, ræður Diction eingöngu til sín færa og faglega þýðendur, sem þýða eingöngu yfir á þeirra móðurmál, eru með akademískan grunn og reynslu í því fagi sem textinn er frá. Starfsheitið þýðandi er ekki lögverndað starfsheiti og þess vegna veljum við gaumgæfilega þá taílensku þýðendur sem vinna fyrir Diction. Þegar þýðingin er tilbúin sendum við hana til annars þýðanda með samsvarandi færni og sérhæfingu og hann prófarkales textann. Við erum að sjálfsögðu alltaf til taks ef þú vilt fá útskýringar á leiðréttingum. Ef þú ert með einhverjar aðrar kröfur varðandi prófarkalestur, þá skrifar þú bara athugasemd með í tölvupósti eða með gögnunum sem þú sendir í gegnum formið hér á síðunni.
Til að tryggja samræmi í málfari er hvert verkefni unnið af einum þýðanda. Diction reynir einnig alltaf að úthluta sama þýðanda til viðskiptavinarins ef verkefnin eru innan sömu faggreinar. Það gerum við til tryggja hugtakanotkun og málfar í nýrri þýðingum sé í samræmi við eldri unnin verkefni innan sömu faggreinar.
Hröð þjónusta á taílenskum þýðingum
Gæðaferli Diction við val á þýðendum og það hversu mikinn fjölda af þýðendum við höfum á skrá, gerir okkur kleift að geta alltaf boðið upp á hraða þjónustu á taílenskum þýðingum og prófarkalestri. Við munum því alltaf afhenda textann fljótt og þú getur verið viss um að fá hann innan umsamins afhendingarfrests.
Þýðingar úr og yfir á Taílensku
Taílenska er töluð af um það bil 60 milljónum mans. Taíland hefur ört stækkandi hóp millistéttar og atvinnulíf í hröðum vexti. Ferðamannaiðnaðurinn skiptir miklu máli fyrir Taíland, og margir Íslendingar fara í ferðir og sumarfrí til Taílands. Hvort sem þú ert að vinna með landbúnað, ferðamannageirann eða framleiðslu, þá eru faglegar vandaðar þýðingar nauðsynlegar til að koma boðskap textans skýrt til skila. Diction ráðleggur þér varðandi hvernig best er að vinna textann og tryggja gæði hans.
Teymið okkar
Við erum til þjónustu reiðubúin í síma 644 0800 eða á netfanginu [email protected]. Opið virka daga frá 08:00 til 17:00.