Viðskiptavinir okkar: Europcar
Þýðingar af ýmsum skjölum fyrir Europcar
Hver
Europcar er eitt af stærstu bílaleigufyrirtækjunum á markaðnum og þjónustar meira en sex milljónir viðskiptavina á hverju ári. Þeir eru leiðandi á Evrópskum markaði og eru staðsettir í meira en 140 löndum út um allan heim. Fyrirtækið er með yfir 200.000 bíla, sem það leigir bæði til einstaklinga og fyrirtækja, auk annarrar leiguþjónustu.
Áskoranir
Þar sem Europcar er alþjóðlegt fyrirtæki, eru starfsmenn fyrirtækisins með hin ýmsu þjóðerni. Til að viðhalda sama þjónustustigi milli landa hjá einingum fyrirtækisins, hefur Europcar sett sér vissa verkferla sem öll lönd eiga að vinna eftir. Vegna þess þurfti að þýða fjöldan allan af texta frá skrifstofum fyrirtækisins á Ítalíu, yfir á skandinavísk tungumál. Þrátt fyrir að fyrirtækið starfi sjálft á fjölda tungumála þá vantaði þeim faglega aðstoð fyrir hin ýmsu verkefni til að leysa tungumálalegar áskoranir.
Lausn
Verkefnastjórar Diction komust fljótt að þeirri niðurstöðu að það þyrfti þýðanda sem hefði þekkingu á bílum til að tryggja rétta hugtakanotkun. Diction valdi því þýðendur með sérkunnáttu á bílaiðnaðinum til að vinna þýðingar fyrir Europcar. Með því að fá verkferlana þýdda, er byrði létt af Europcar og fyrirtækið getur haldið uppi sínu þjónustustigi um allan heim.
Ef þú vilt fá þýðingastofu sem veitir þér hágæðaþýðingar, með stuttan afhendingarfrest og hagstæð verð, hafðu þá samband í síma 644+4522277016"> 0800 eða í gegnum netfangið [email protected]