Viðskiptavinir okkar: PricewaterhouseCoopers
Þýðingar á lögfræðilegum skjölum fyrir PwC
Hver
PwC er leiðandi endurskoðendaskrifstofa á heimsvísu, með skrifstofur í 157 löndum og með yfir 208.000 starfsmenn um allan heim. PwC aðstoða fyrirtæki með því að vera ráðgjafar í bókhaldi og skattamálum ásamt annarrar ráðgjafaþjónustu. Árið 2015 voru PwC rágjafar 418 fyrirtækja af 500 stærstu fyrirtækjunum á Fortune Global 500 listanum. PwC velti árið 2015 yfir 35,4 milljörðum bandaríkjadollara.
Áskoranir
PwC er með margar skrifstofur á Norðurlöndunum og norska útibúinu í Osló vantaði aðstoð við að þýða fjölda lögfræðilegra skjala fyrir alþjóðlega viðskiptavini. Um var að ræða skjöl sem snerust um skattamál og því verulega mikilvægt að fá þýðanda, sem væri sérhæfður í því, til að tryggja að þýðingarnar væru nákvæmlega eins og frumskjalið. PWC leitaði því til Diction til að þýða skjölin.
Lausnin
Diction hefur á skrá verulega stóran hóp af þýðendum, frá mismunandi faggreinum. Í þessu tilfelli vantaði þýðanda með lögfræðilegan skilning og sérstaka þekkingu á hugtakanotkun í skattarétti. Diction fékk því sérfræðing sem uppfyllti þær kröfur sem þurfti fyrir verkefnið, auk þess sem þýðandinn gat einnig aðstoðað PwC í Noregi við löggildar þýðingar.
Ef þig vantar þýðingastofu þar sem þú færð hraða þjónustu, villulausan texta og hagstæð verð, hafðu þá samband við okkur í síma 644 0800 eða sendu okkur tölvupóst á [email protected]