Viðskiptavinir okkar: Santander Consumer Bank
Spænski Santander Consumer Bank kemur inn á skandinavískan markað
Hver
Santander Consumer Bank er hluti af Banco Santander, sem er stærsti bankinn innan evrusvæðisins og meðal stærstu banka í heimi. Bankinn er með yfir 195.000 starfsmenn út um allan heim og yfir 120 milljónir viðskiptavina í meira en 40 löndum. Árið 2015 var markaðsvirði Banco Santander 66 milljónir evra og fyrirtækið hagnaðist um 6,6 milljónir evra eftir skatt. Santander Consumer Bank er í dag í leiðandi stöðu á skandinavískum markaði bæði þegar kemur að neytendalánum eins og bílalánum og eru einnig sérfræðingar í lánum og sparnaðarreikningum fyrir einstaklinga.
Áskoranir
Santander Consumer Bank átti í vandræðum með lögfræðileg skjöl, sem bæði þurfti að aðlaga að skandinavískum markaði og þýða yfir á mismunandi tungumál. Skjölin sem þurfti að aðlaga voru t.d. viðskiptaskilmálar, lánaskilmálar og kreditkortaskilmálar svo eitthvað sé nefnt auk annarra lögfræðilegra og fjármálatengdra skjala, sem þýða þurfti úr ensku yfir á dönsku. Bankinn þurfti utanaðkomandi aðstoð og hafði samband við fjölda faglegra Þýðingastofa, meðal annars Diction.
Lausnin
Eftir að hafa fengið ítarlega kynningu á því hvernig Diction vinnur við að þýða skjöl af þessum toga, valdi Santander Consumer Bank að fela Diction að þýða skjölin fyrir sig. Í samvinnu við Santander Consumer Bank hefur Diction tryggt nákvæmar þýðingar á hagstæðu verði fyrir bankann. Hefur það einfaldað bankanum að komast inn á skandinavískan markað.
Ef þú vilt fá þýðingastofu sem getur veitt hraða þjónustu á villulausum texta og hagstæð verð, hafðu þá samband við okkur í síma. +3546440800">644 0800 eða sendu okkur tölvupóst [email protected].